Heimasíða Íslendinga í Noregi
Hvort sem maður er að flytja til Noregs, búinn að búa lengi í Noregi eða langar að hjálpa öðrum um ýmislegt sem viðkemur búsetu í Noregi er gott að geta nálgast upplýsingar á einum stað. Á þessari vefsíðu verður vonandi hægt að nálgast flestar þær upplýsingar sem fólk þarfnast við að fóta sig í nýju landi.
Öllum ábendingum
um betrumbætur, viðbætur
og annað er vel tekið
Margar upplýsingar á síðunni eru fengnar ,,að láni" héðan og þaðan og vonandi brýtur það ekki í bága við höfundarrétt neins að safna þeim saman hér.
Það er til Facebook-síða með sama nafni og verður tengt á hana héðan. Munurinn á þessari síðu og Facebook-síðunni er sá að hér verður hægt að nálgast upplýsingar á aðgengilegri hátt og leita að upplýsingum á síðunni. Umræðusíða er líka til staðar og verður vonandi vel tekið. Þar að auki eru ekki allir með Facebook (ótrúlegt en satt). 
Í aðalvalmyndinni NOREGUR/Segðu frá er hægt að skrá sig sem notanda og senda inn greinar um áhugaverða staði í Noregi, göngu- og hjólaleiðir. Ef ykkur dettur í hug að það vanti að setja inn fleiri undirflokka ekki hika við að hafa samband.